Skripo veltir fyrir sér hvað þurfi til að menn geti kallað sig viðskipasiðfræðing? Er til viðurkennt starfsheiti viðskiptasiðfræðinga?
Eyja segir frá því að hann hafi skipulagt flug með fokker vélum til handa ungum sjálfstæðismönnum.
Eins og má hér studdi hann innrásina í Írak:
Það mál sem ber hvað oftast á góma í þjóðfélagsumræðunni þessa dagana er væntanleg innrás Bandaríkjamanna og Breta inn í Írak. Ég er mjög hlynntur slíkum aðgerðum enda tel ég mjög brýnt að losa okkur við þann illa mann sem Saddam Hussein er.
Aðdáun hans á Hannesi leynir sér ekki.
Hannes Hólmsteinn Gissurarson er án nokkurs vafa einn merkasti fræðimaður okkar íslendinga, merkilegri pappír en menn eins og Guðmundur Ólafsson og menn líkir honum. Heimasíða Hannesar er skemmtileg
Bryndís Hlöðversdóttir er greinilega “ein allra óhentugasta konan sem komið hefur inn í pólitík”
Bryndís Hlöðversdóttir er ein allra óhentugasta konan sem komið hefur inn í pólitík á síðustu árum. Hún er einfaldlega ekki með þetta. Hún er geysilegur fylgismaður Evrópusambandsins en samt vill hún halda tollum á erlendum bókum háum á sama tíma og hún…
Ingibjörg rassskellt í fjölmiðlum í kvöld – er ein fyrirsögnin.
Stefán Einar skrifaði þann 17.4 2003: Ingibjörg Sólrún er að missa það þessa stundina. Stuðningur við hana í könnunum dvínar og sólin skín ekki lengur á hana og fylgismenn hennar. Einsog ég sagði frá hér á síðunni hefur hún á síðustu vikum sagt hálfkveðnar vísur um Davíð Oddsson og Sjálfstæðisflokkinn,…
Það er ekki að sökum að spyrja. Ingibjörg Sólrún, talsmaður Samfylkingarinnar hefur hleypt öllu upp enn eina ferðina með dylgjum og óhróðri sem ekki á við rök að styðjast. Nú hefur hún haldið því fram að Davíð Oddsson misbeiti valdi sínu, en það var…
Ekki þykir þörf á því að eiga við þessa mynd, hún stendur fyrir sínu eins og hún er.
