Börnin borga Icesave
Jón vinafái
Börn en ekki Björn
Jón Gnarr – leiði trúðurinn
The end
Ólafur F – Fallegustu konurnar
Ólafur Fucking Magnússon sagði frá því DV að hann væri með fallegustu konurnar.
Steinunn Valdís tók við tæpum 13 milljónum
Pressan upplýsir að Steinunn Valdís tók við tæplega 13 milljónum. Peningahatturinn sómir sér því vel á höfði hennar og spurning hverra hagsmuna hún hefur gætt á þingi.
Viðskiptasiðfræðingurinn
Skripo veltir fyrir sér hvað þurfi til að menn geti kallað sig viðskipasiðfræðing? Er til viðurkennt starfsheiti viðskiptasiðfræðinga?
Eyja segir frá því að hann hafi skipulagt flug með fokker vélum til handa ungum sjálfstæðismönnum.
Eins og má hér studdi hann innrásina í Írak:
Það mál sem ber hvað oftast á góma í þjóðfélagsumræðunni þessa dagana er væntanleg innrás Bandaríkjamanna og Breta inn í Írak. Ég er mjög hlynntur slíkum aðgerðum enda tel ég mjög brýnt að losa okkur við þann illa mann sem Saddam Hussein er.
Aðdáun hans á Hannesi leynir sér ekki.
Hannes Hólmsteinn Gissurarson er án nokkurs vafa einn merkasti fræðimaður okkar íslendinga, merkilegri pappír en menn eins og Guðmundur Ólafsson og menn líkir honum. Heimasíða Hannesar er skemmtileg
Bryndís Hlöðversdóttir er greinilega “ein allra óhentugasta konan sem komið hefur inn í pólitík”
Bryndís Hlöðversdóttir er ein allra óhentugasta konan sem komið hefur inn í pólitík á síðustu árum. Hún er einfaldlega ekki með þetta. Hún er geysilegur fylgismaður Evrópusambandsins en samt vill hún halda tollum á erlendum bókum háum á sama tíma og hún…
Ingibjörg rassskellt í fjölmiðlum í kvöld – er ein fyrirsögnin.
Stefán Einar skrifaði þann 17.4 2003: Ingibjörg Sólrún er að missa það þessa stundina. Stuðningur við hana í könnunum dvínar og sólin skín ekki lengur á hana og fylgismenn hennar. Einsog ég sagði frá hér á síðunni hefur hún á síðustu vikum sagt hálfkveðnar vísur um Davíð Oddsson og Sjálfstæðisflokkinn,…
Það er ekki að sökum að spyrja. Ingibjörg Sólrún, talsmaður Samfylkingarinnar hefur hleypt öllu upp enn eina ferðina með dylgjum og óhróðri sem ekki á við rök að styðjast. Nú hefur hún haldið því fram að Davíð Oddsson misbeiti valdi sínu, en það var…
Ekki þykir þörf á því að eiga við þessa mynd, hún stendur fyrir sínu eins og hún er.
Tinmaðurinn Björgvin
Björgvin G. Sigurðsson hefur sagt af sér þingflokksformensku út af sínum þætti í hruninu sem er nokkuð ótrúlegt, þar sem þingflokssformenska hans hefur ekkert með afglöpin sem hann gerði að gera. Þingmennskan væri eitthvað sem væri nær.
Það virðist hafa verið ótrúlega lítið traust og almenn vitneskja hjá samstarfsmönnum hans að honum væri alls ekki treystandi.
Yfirlýsingar Björvins voru líka mjög áhugaverðar rétt eftir hrunið þar sem hann kom með fullyrðingar varðandi peningamarkaðssjóðina og starfsemi bankana (engum yrði sagt upp) sem stóðust alls ekki.
Fyrir utan að þegar hann er að tala er það eins og þegar verið er að tala við vélmenni, þá er innihaldið eins og fyrir fram forrituð saga sem er án innihalds.
Sigurjón hámar í sig snúð
Lýsing Össurar á samskiptum sínum við Sigurjón Árnason, bankastjóra Landsbankans:
„Svo var þessi fundur búinn, Sigurjón var þarna, það voru snúðar á borðunum, skornir í tvennt, stórir snúðar. Sigurjón er nú munnstór maður og mikill og þegar þeir voru farnir út og hann var einn eftir þá tók hann svona hálfan snúð, tróð honum upp í andlitið á sér og skaut undan snúðnum þessari setningu: Ég hef ekki trú á þessu, ég hef ekki trú á þessu. Þá kom svona hönd með gullúri og kippti honum út.”
Spá fyrir rannsóknarskýrsluna
Prufaðu stjórnun að hætti Lárusar
Heimilislausir geta alla vegana spilað golf
Dregið hefur verið úr allri velferðarþjónustu, Vilhjálmur Þ sagði að stærri golfvöllur yrði mikilvægt tómstundasvæði fyrir atvinnulausa.
XD fyrir golfara
Hún er fræg myndin af Framsóknarmönnum þegar þeir lögðu í stæði fyrir fatlaða. Sjálfstæðisflokkurinn bíður nú borgarbúum upp á að greiða yfir 200 milljónir í golfvöll, þegar þeir hafa dregið úr allir þjónustu. Það er því viðeigandi að setja inn þessa mynd af þeim í stæði fyrir fatlaða á hummer golf “cart”.
Frelsun DV
Nýr eigendahópur DV er svo sannarlega merkilegur. Bílstjóri, prestur og jógakennari í hópnum. Líklega er eini gallinn sjálfur ritstjórinn, sem nýtur varla mikils trausts. DV er þó eina blaðið sem er óháð fjármálaöflum og flokkum.
Leikhús fáránleikans
Samkvæmt þessari frétt á að nota peninga skattborgara til að lesa upp skýrsluna um bankahrunið. Skripo spáir því að ekki margir muni sækja þessa sýningu.

















